Auglýst útboð

Rangárvallavegur (264), Hringvegur - Akurbrekka

27.1.2009

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurgerð á 7,4 km löngum kafla Rangárvallavegar (264), frá Hringvegi að Akurbrekku.

Helstu magntölur eru:

Skering

10.850

m3

Fylling

15.510

m3

Fláafleygar

5.900

m3

Neðra burðarlag

27.030

m3

Efra burðarlag

 6.670

m3

Ræsi

54

m

Tvöföld klæðing

49.040

m2

Frágangur fláa

74.600

m2

Verki skal að fullu lokið fyrir 1. október 2009.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 26. janúar 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. febrúar 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica