Auglýst útboð
Rangárvallavegur (264), Hringvegur - Akurbrekka
Ákveðið hefur verið að hætta við útboð á verkinu Rangárvallavegur (264), Hringvegur-Akurbrekka
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurgerð á 7,4 km löngum kafla Rangárvallavegar (264), frá Hringvegi að Akurbrekku.
Helstu magntölur eru:
Fylling og fláafleygar 21.400 m3
Neðra burðarlag 27.000 m3
Efra burðarlag 6.670 m3
Ræsi 54 m
Tvöföld klæðing 49.040 m2
Verki skal að fullu lokið fyrir 1. september 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. október 2008.
Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. nóvember 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

