Auglýst útboð

Borgarfjarðarvegur (94), Lagarfossvegur - Sandur

22.9.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á um 4,6 km löngum kafla Borgarfjarðarvegar (94), frá Lagarfossvegi að Sandi í Hjaltastaðaþinghá, ásamt klæðningu á 900 m kafla á Lagarfossvegi.

Helstu magntölur eru:

Bergskering

1.600

m3

Fylling og fláafleygar

13.700

m3

Neðra burðarlag

18.200

m3

Efra burðarlag

6.000

m3

Stálröraræsi

86

m

Tvöföld klæðing

35.100

m2

Verki skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2009.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 22. september 2008. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. október 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.






Útlit síðu: