Auglýst útboð

Vetrarþjónusta, Brjánslækur - Bíldudalur 2008-2011

14.7.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur með vörubifreið á leiðinni milli Brjánslækjar og Bíldudals. Einnig frá Bíldudal að Bíldudalsflugvelli og á Tálknafjarðarvegi. Um verkið verður gerður marksamningur.

Helstu magntölur á ári eru (viðmiðunartölur marksamnings):

Vörubíll í snjómokstri og hálkuvörn         22.000 km

Verktími er frá 1. október 2008 til og með 30. apríl 2011.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 14. júlí 2008. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júlí 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica