Auglýst útboð

Vetrarþjónusta í Eyjafirði og á Hringvegi(1) að Krossi 2008-2013

8.7.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur með vörubifreiðum ásamt stjórnun og eftirliti með snjómokstri í Eyjafirði og á Hringvegi frá Akureyri að Krossi í Ljósavatnsskarði. Um verkið verður gerður marksamningur.

Helstu magntölur á ári eru (viðmiðunartölur marksamnings) :

Mokstur og hálkuvörn með vörubíl

63.135

km/ár

Eftirlit á smábíl

40.759

km/ár

Vörubíll, mokstur tímagjald

35

t/ár

Tímar manns

308

t/ár

Veghefill

37

t/ár

Hjólaskófla

92

t/ár

Verktími er frá 1. október 2008 til og með 30. apríl 2013.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 7. júlí 2008. Verð útboðsgagna 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica