Auglýst útboð

Tröllatunguvegur (605), Vestfjarðavegur - Djúpvegur

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð nýs Tröllatunguvegar (605). Verkið felst í gerð nýs vegar frá Vestfjarðavegi (60)  í Geiradal, um Gautsdal, Tröllatunguheiði og Arnkötludal að Djúpvegi (61) í Steingrímsfirði.  Lengd útboðskaflans er um 24,5 km.         

Helstu magntölur eru:

Bergskering 350.000 m3
Skering í laus jarðlög 480.000 m3
Fylling og fláafleygar 780.000 m3
Neðra burðarlag 120.000 m3
Efra burðarlag 40.000 m3
Klæðing 190.000 m2
Stálplöturæsi 170 m
Ræsalögn 1.600 m
Víravegrið 6.000 m
Frágangur fláa 570.000 m2


Verki skal að fullu lokið fyrir 1. september  2009.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 20. febrúar 2007.   Verð útboðsgagna er 8.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 20 mars 2007 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.

 

 





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica