Matsskýrslur

14.11.2011 : Vestfjarðavegur, Eiði-Þverá, Matsskýrsla

Vestfjarðarvegur, Eiði - Þverá


Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu fyrir Vestfjarðaveg milli Eiðis og Þverár, sem unnin er á grundvelli frummatsskýrslu. Framkvæmdin ber heitið Vestfjarðavegur (60), milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í Reykhólahreppi og Vesturbyggð.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum við frummatsskýrslu og tekin afstaða til þeirra.

Lesa meira

10.3.2011 : Axarvegur, Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Matsskýrsla

Axarvegur - Yfirlitsmynd

Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu fyrir Axarveg, Hringveg í Skriðdal og Hringveg um Berufjarðarbotn sem unnin er á grundvelli frummatsskýrslu. Framkvæmdin ber heitið Axarvegur (939), Hringvegur (1) í Skriðdal og Hringvegur (1) um Berufjarðarbotn.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum við frummatsskýrslu og tekin afstaða til þeirra.

Lesa meira

16.6.2010 : Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Suðurlandsvegur -

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að áhrif tvöföldunar Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss hafi óhjákvæmilega í för með sér talsverðar breytingar á hljóðvist og ásýnd svæðisins.....

Lesa meira

13.7.2009 : Skipulagsstofnun jákvæð gagnvart tvöföldun Suðurlandsvegar

Suðurlandsvegur fyrir ofan Litlu kaffistofuna

Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að óháð því hvaða kostur verður valinn við að tvöfalda og/eða aðskilja aksturstefnur á Suðurlandsvegi á milli Hólmsár og Hveragerðis, þá hafi þeir allir jákvæð áhrif á umferðaröryggi. Stofnunin telur sig hins vegar ekki hafa forsendur til að leggja mat á hver kostanna sé bestur m.t.t. umferðaröryggis.


Skipulagsstofnun gaf út álit sitt um mat á umhverfissáhrifum fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði 13. júlí.

Lesa meira

25.3.2009 : Norðfjarðargöng - Matsskýrsla

Norðfjarðargöng - Yfirlitsmynd

Vegagerðin áformar að byggja ný jarðgöng, Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.

 

Jarðgöngin verða 6,9-7,8 km löng og nýir vegir verða samtals 7,2-8,8 km langir beggja vegna gangamunna.


Í heild er um er að ræða 15,0-15,9 km langa framkvæmd sem verður hluti af Norðfjarðarvegi.

 

Lesa meira

25.2.2008 : Breikkun Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, frá Ásbraut að Krísuvíkurvegi

Breikkun Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, frá Ásbraut að Krísuvíkurvegi

Matsskýrsla þessi er liður í mati á umhverfisáhrifum breikkunar Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, frá Strandgötu (áður Ásbraut) að Bikhellu, breytingar á mislægum vegamótum Reykjanesbrautar og Strandgötu og gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í samræmi við lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum með síðari breytingum.

Lesa meira

7.6.2007 : Norðausturvegur til Vopnafjarðar - Matsskýrsla

Tenging Vopnafjarðar við Hringveg

Vegagerðin áformar að leggja nýjan veg um Vopnafjarðarhrepp í Norður-Múlasýslu. Vegurinn verður hluti af Norðausturvegi og verður 24 til 42 km langur, háð leiðarvali. Hann mun tengja Vopnafjörð við Hringveg og liggja frá núverandi Norðausturvegi við Brunahvammsháls að byggðinni í Vopnafirði. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2007 og þeim verði lokið haustið 2010.


Framkvæmdin fellur undir 5. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum, framkvæmdir sem eru ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdaraðili er Vegagerðin og ber hún ábyrgð á mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar.

Lesa meira

26.10.2006 : Arnarnesvegur - Mat á umhverfisáhrifum - Matsskýrsla

Vegagerðin hefur áform um að leggja 4,2 km langan veg á milli Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar og nefnist hann Arnarnesvegur. Vegurinn liggur um þrjú sveitarfélög; Garðabæ, Kópavog og Reykjavík, en stærsti hluti vegarins er í landi Kópavogs. Jafnframt eru áform um lagningu 700 m tengibrautar í Kópavogi, á milli Arnarnesvegar og Elliðavatnsvegar.

Þessi skýrsla fjallar um mat á umhverfisáhrifum þessarar vegaframkvæmdar. Bygging Arnarnesvegar er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 en fyrirhuguð tengibraut um Hörðuvelli er tilkynningarskyld samkvæmt sömu lögum, en ekki sjálfkrafa matsskyld.

Matið var unnið af VSÓ Ráðgjöf undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Orion ráðgjöf ásamt VSÓ hefur unnið frumdrög að hönnun framkvæmdar, einnig undir verkstjórn Vegagerðarinnar og í samvinnu við Kópavogsbæ, Reykjavík og Garðabæ.

Lesa meira

3.8.2006 : Dettifossvegur í Norðurþingi og Skútustaðahreppi - Matsskýrsla

Vegagerðin áformar að leggja nýjan 50 km langan veg meðfram Jökulsá á Fjöllum að vestanverðu. Vegurinn liggur milli Hringvegar og Norðausturvegar og mun kallast Dettifossvegur.

Í samgönguáætlun Alþingis fyrir árin 2003-2014 er ekki tilgreind sérstök fjárveiting til vegar meðfram Jökulsá á Fjöllum að vestanverðu. Á samgönguáætlun Alþingis fyrir árin 2005-2008 eru byrjunarfjárveitingar, 468 m.kr. á árunum 2005-2008, til uppbyggingar Dettifossvegar. Áætlað er að skipta framkvæmdinni í þrjá áfanga: I Hringvegur-Dettifoss, II Dettifoss- Vesturdalur, III Vesturdalur-Norðausturvegur. Stefnt er að því að framkvæmdir á áfanga I hefjist árið 2006 og þeim verði lokið haustið 2008.

Lesa meira

31.5.2006 : Dettifossvegur, Hringvegur-Norðausturvegur

Árið 2001 var skipaður samráðshópur um tilhögun vegamála við Jökulsá á Fjöllum. Í hópnum voru fulltrúar frá sveitarfélögum á svæðinu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Ferðamálaráði Íslands, Náttúruvernd ríkisins og Vegagerðinni. Samráðshópurinn lagði til í ljósi byggða- og ferðaþjónustusjónarmiða að byggður yrði heilsársvegur með bundnu slitlagi vestan Jökulsár, með góðum tengingum niður í Vesturdal, Hólmatungur og að bílastæði við Dettifoss.


Framkvæmd sú sem hér er til umfjöllunar á vegum Vegagerðarinnar er 50 km langur vegur vestan Jökulsár á Fjöllum, á leiðinni milli Hringvegar og Norðausturvegar. Vegurinn mun liggja um Skútustaðahrepp í Suður-Þingeyjarsýslu og Kelduneshrepp í Norður-Þingeyjarsýslu.

Lesa meira



Útlit síðu: