Tenging Vopnafjarðar við Hringveg
Norðausturvegur, tenging Vopnafjarðar við Hringveg – Mat á umhverfisáhrifum og samanburður leiða
Framkvæmdir á á Norðausturvegi á kaflanum frá Brunahvammi til Vopnafjarðar eru á vegáætlun árið 2006 en hún er nú til endurskoðunar. Einnig er gert ráð fyrir framhaldi á öðru tímabili samgönguáætlunar 2007-2010. Stefnt er að því að undirbúningi framkvæmda verði að hluta til lokið árið 2006. Áætlaður framkvæmdatími verksins er háður fjárveitingum og leiðavali en getur styst orðið 4 ár.
Framkvæmdaraðili er Vegagerðin og ber hún ábyrgð á mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar framkvæmdar. Matsáætlun fyrir framkvæmdina var unnin skv. lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Til athugunar eru þrír meginkostir; 1) Hofsárdalsleið, 2) Vesturárdalsleið og 3) Hofshálsleið.
Samanburður leiða var kynntur á borgarafundi í Vopnafirði 22. febrúar 2005. Áður var búið að kynna samanburðinn fyrir þingmönnum Norðaustursvæðis og sveitarstjórnarmönnum í Vopnafirði.
Niðurstaðan er kynnt í greinargerðunum "Skýrsla Vegagerðarinnar, Samanburður leiða" og "Greinargerð frá VSÓ, Samanburður leiða 1, 2 og 3" í töflunni hér fyrir neðan.
Drög að matsskýrslu,mars 2005
Skýrslur og teikningar á pdf formi, stærð skráa í MB
| Skýrsla Vegagerðarinnar, 0,4 MB | Samanburður leiða |
| Teikning 1, 3,3 MB | Grunnmynd, leiðir til skoðunar |
| Teikning 2-1, 3,6 MB | Grunnmynd af veglínum með fyllingum og skeringum, 1/2 |
| Teikning 2-2, 3,3 MB | Grunnmynd af veglínum með fyllingum og skeringum, 2/2 |
| Teikning 3, 2,3 MB | Langsnið í yfirborð lands |
| Greinargerð frá Orion, 1,0 MB | Ráðgjöf vegna snjóhönnunar |
| Kortahefti frá Orion, 0,2 MB | Kortaskrá |
| Yfirlitsmynd, 1,5 MB | Yfirlitsmynd |
| Kort 1 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Brunahvammur SV-átt |
| Kort 2 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Brunahvammur V-átt |
| Kort 3 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Brunahvammur NV-átt |
| Kort 4 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Brunahvammur N-átt |
| Kort 5 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Brunahvammur NA-átt |
| Kort 6 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Þuríðarvatn SV-átt |
| Kort 7 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Þuríðarvatn V-átt |
| Kort 8 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Þuríðarvatn NV-átt |
| Kort 9 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Þuríðarvatn N-átt |
| Kort 10 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Þuríðarvatn NA-átt |
| Kort 11 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Hofsháls SV-átt |
| Kort 12 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Hofsháls V-átt |
| Kort 13 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Hofsháls NV-átt |
| Kort 14 frá Orion, 1,5 MB | Vindhraðakort - Hofsháls N-átt |
| Kort 15 frá Orion, 1,4 MB | Vindhraðakort - Hofsháls NA-átt |
| Minnisblað frá Orion, 0,2 MB | Samanburður veðurstöðva á Vopnafjarðarheiði, Mývatns- og Möðrudalsöræfum |
| Greinargerð frá VSÓ, 0,2 MB | Samanburður leiða 1, 2 og 3 |
| Yfirlitskort, 1,4 MB | Leiðir til skoðunar |
| Grunnmynd, 3,2 MB | Mögulegar leiðir |
| Millidalaleið, 2,7 MB | Frumdrög að millidalaleið |

