Vegagerðin auglýsir hér með að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra efnistöku í farvegi Múlakvíslar á Mýrdalssandi. Efnistaka úr farveginum er ætluð til byggingar varnargarða og vegar vegna endurbyggingar mannvirkja við Múlakvísl sem eyðlögðust eða skemmdust í jökulhlaupi 9. júlí 2011.
Athugasemdafrestur til 14. desember 2012
Tillaga að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð, hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. mars 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í sveitarfélögunum Reykhólahreppi og Vesturbyggð.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur í 2 vikur eða til 7. júní 2010.
Tillaga að matsáætlun fyrir Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 18.05.2010.
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Austurleið (F923) í Fljótsdalshéraði. Fyrirhugað er að byggja 9,7 km langan nýjan veg frá Aðgöngum 3 Kárahnjúkavirkjunar í Glúmsstaðadal niður að Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Nýlagning er um 6,5 km en vegurinn fylgir núverandi Austurleið á rúmlega 3 km kafla.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur í 2 vikur eða til 9. apríl 2010.
Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Vesturlandsvegi að Hólmsá hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 25.03.2009
Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnunar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar fyrir 4. mars 2009.
Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar fyrir almenning í rúmar tvær vikur, til og með 2. mars 2009, áður en þeim verður skilað inn til formlegrar umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma ábendingum og athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til verkfræðistofunnar Eflu á netfangið arni.bragason efla.is með fyrirsögninni "Suðurlandsvegur – tvöföldun – Vesturlandsvegur að Hólmsá.
Vegagerðin hyggst tvöfalda Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss. Markmið þessarar framkvæmdar er að byggja veg með tvær aðskildar akreinar í hvora átt og auka þannig umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg. Gerð verða mislæg vegamót á allt að 4 stöðum og tengingum þannig fækkað og þær gerðar öruggari.
Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar fyrir almenning í rúmar tvær vikur, til og með 29. janúar 2009.
Fyrirhuguð er lagning nýs vegar og nýrra ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum. Vinnuheiti þessarar framkvæmdar er: Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.
Kannaðar hafa verið jarðfræðilegar aðstæður til gangagerðar á milli Dýrafjarðar og Borgarfjarðar í Arnarfirði. Einungis ein leið er talin koma til greina. Vegstæðið nær frá Mjólká í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að tryggja góðar og öruggar samgöngur á Vestfjarðavegi nr. 60 á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Það er skilyrði þess að heilsárs vegarsamband sé á milli Barðastrandarsýslna og Ísafjarðarsýslna.
Tillaga að matsáætlun fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan Reykjavíkur og að Hveragerði hefur verið lögð inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila.
Vegagerðin kynnir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Axarvegi, milli Skriðdals í Fljótsdalshéraði og Berufjarðar í Djúpavogshreppi í Suður-Múlasýslu. Byggja á nýjan 18 km langan veg sem nær frá vegamótum við Hringveg um 5 km sunnan við enda Skriðuvatns í Skriðdal, að Hringvegi í botni Berufjarðar.
Vegagerðin kynnir hér með tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.
Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar (254) og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.
Í matsáætlun er gerð grein fyrir:
Fyrirhuguðum framkvæmdum.
Umhverfisþáttum sem fjallað verður um í frummatsskýrslu.
Umfjöllunarefni frummatsskýrslu, og rannsóknum sem ráðast á í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Lesa meira
Vegagerðin og Siglingastofnun Íslands kynna nú drög að tillögu að matsáætlun þar sem gerð er grein fyrir fyrirhugðum framkvæmdum við ferjuhöfn á Bakkafjöru og mannvirkjum því tengd.
Vegagerðin og Siglingastofnun kynna hér tillögu að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruveg (254) og efnistöku vegna framkvæmda á Hamragarðaheiði og úr Markarfljótsaurum.
Framkvæmdin sem hér um ræðir er 11-18 km löng veglagning, háð veglínum og nær frá Hringvegi vestan Hornafjarðarfljóta, yfir Hornafjarðarfljót og að Hringvegi skammt austan Hafnarvegar sem liggur að Höfn í Hornafirði. Framkvæmdaraðili er Vegagerðin og leggur hún fram þrjár veglínur til skoðunar í mati á umhverfisáhrifum, leið 1, leið 2 og leið 3.
Lesa meiraÁætlaðar eru framkvæmdir við 2. áfanga Sundabrautar í Reykjavík frá Gufunesi upp á Kjalarnes.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á norðurhluta höfðuborgarsvæðisins, bæta tengingu Vestur- og Norðurlands við höfðuborgarsvæðið, auka öryggi í samgöngum, létta á umferðarþunga á öðrum vegum, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og opna fyrir þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu til norðurs og norðausturs.
Lesa meiraVegagerðin kynnir hér með tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra breytinga á Hringvegi um Hornafjarðarfljót. Framkvæmdin er 11-18 km löng veglagning, háð veglínum og nær frá Hringvegi vestan Hornafjarðarfljóts, yfir Hornafjarðarfljót og að Hringvegi skammt austan Hafnarvegar sem liggur að Höfn í Hornafirði. Framkvæmdin styttir Hringveginn um 10-12 km. Tilgangur framkvæmdar er að bæta samgöngur á Suðausturlandi og styrkja byggðalög á Suðaustur- og Austurlandi með bættu vegasambandi á Hringvegi.
Lesa meiraMeð þessari tillögu að matsáætlun hefst mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar breikkunar Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, frá Ásbraut að fyrirhuguðum Krýsuvíkurvegi, úr tveimur akreinum í fjórar. Í matinu verður einnig fjallað um mislæg vegamót Reykjanesbrautar og fyrirhugaðs Krýsuvíkurvegar.
Lesa meiraVegagerðin kynnir hér með nýja tillögu að matsáætlun um Gjábakkaveg (365) á milli Þingvalla og Laugarvatns. Fyrirhugaður vegur er um 15 km langur og liggur um þann hluta Bláskógabyggðar sem áður hét Laugardalshreppur og Þingvallahreppur. Þá sneiðir vegurinn í gegnum land Grímsnes- og Grafningshrepps. Í nágrenni fyrirhugaðs vegar eru m.a. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Gjábakki, Gjábakkahraun, Reyðarbarmur og Laugarvatnsvellir.
Lesa meiraVegagerðin leggur hér fram tillögu að matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vegna ný- og endurlagnar Vestfjarðavegar í Reykhólahreppi, Austur-Barðastrandarsýslu.
Um er að ræða Vestfjarðaveg nr. 60 milli Bjarkalundar í Berufirði og Eyri í Kollafirði.
Lesa meiraÁ vegáætlun árið 2006 og á öðru tímabili samgönguáætlunar 2007-2010 er gert ráð fyrir tengingu Vopnafjarðar við Hringveg með framkvæmdum á Norðausturvegi frá Brunahvammi til Vopnafjarðar. Áætlað er að hefja framkvæmdir 2006 og er stefnt að því að undirbúningi framkvæmda geti að hluta til verið lokið árið 2005.
Til athugunar eru þrír meginkostir; 1) Hofsárdalsleið, 2) Vesturárdalsleið og 3) Vesturárdalsleið um Hofsháls.
Framkvæmdir á á Norðausturvegi á kaflanum frá Brunahvammi til Vopnafjarðar eru á vegáætlun árið 2006 en hún er nú til endurskoðunar. Einnig er gert ráð fyrir framhaldi á öðru tímabili samgönguáætlunar 2007-2010. Stefnt er að því að undirbúningi framkvæmda verði að hluta til lokið árið 2006. Áætlaður framkvæmdatími verksins er háður fjárveitingum og leiðavali en getur styst orðið 4 ár.
Lesa meiraÁ vegáætlun (2003-2006) eru fjárveitingar til framkvæmda á Hólmatungnavegi vestan Jökulsár á Fjöllum í Keldunes- og Skútustaðahreppi í Norður- og Suður- Þingeyjarsýslum. Áætlað er að áfangaskipta framkvæmdinni en hún er alls um 52 km löng og nær frá Norðausturvegi vestan Ásbyrgis í Norður - Þingeyjarsýslu að Hringvegi, vestan Jökulsár á Fjöllum í Suður- Þingeyjarsýslu. Reiknað er með tengingum frá veginum niður í Vesturdal, Hólmatungur og að Dettifossi.
Lesa meira