Samgönguáætlun / Vegáætlun

Vegáætlun er nú hluti af samgönguáætlun. Lög um samgönguáætlun nr. 33/2008

Vefur samgönguáætlunar 2007 - 2018
Samgönguáætlun tekur til fjáröflunar og útgjalda til flugmála, vegamála og siglingamála. Samgönguáætlun er tvíþætt. Annars vegar er tólf ára áætlun, sem skipt er í þrjú tímabil, fjögur ár hvert, endurskoðuð á fjögurra ára fresti. Kemur hún í stað langtímaáætlunar í vegagerð. Hins vegar er fjögurra ára áætlun, sem tekur til stofnanaáætlana, þar með er talin vegáætlun, og lýtur hún svipuðum reglum og stofnanaáætlanirnar hafa gert.

Fjögurra ára samgönguáætlunin er gerð til nánari sundurliðunar 12 ára áætlunarinnar og er endurskoðuð annað hvert ár. Sá hluti hennar er tekur til vegamála heitir nú vegáætlun.

Tekjur og framlög til vegamála eru einkum af mörkuðum tekjustofnum; bensíngjald, olíugjald og þungaskattur km-gjald en einnig framlag úr ríkissjóði.

Helstu gjaldaliðir eru; nýbyggingar vega, viðhald þeirra og þjónusta ýmisskonar. Hin síðari ár hafa margir þættir almenningssamgangna verið í umsjá Vegagerðarinnar, svo sem ferjur og flóabátar, áætlunarflug og sérleyfisakstur - og greiðsla styrkja til viðkomandi rekstraraðila.

Vegáætlun 2007 - 2010 - Skipting vegafjár eftir kjördæmum

Samgönguráðuneytið hefur gefið út kynningarbæklinginn Samgönguáætlun 2007-2010.

Sérstakur vefur samgönguáætlunar er ætlað að veita upplýsingar og fróðleik um hvað felst í næstu tólf ára samgönguáætlun og annað sem tengist þeirri áætlanagerð.

Skýrsla Vegagerðarinnar um framkvæmd samgönguáætlunar 2008 - Vegáætlun

Sjá einnig: Umhverfismat samgönguáætlunar 2007-2018



Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2007 - Vegáætlun

Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2006 - Vegáætlun

Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2005 - Vegáætlun

Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2004 - Vegáætlun

Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2003 - Vegáætlun

Skýrsla samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2002 - Vegáætlun



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica