Kynning framkvæmda á Suðvestursvæði

30.8.2011 : Hringvegur - Göngubrú við Krikahverfi í Mosfellsbæ

Göngubrú Við Krikahverfi - Yfirlitsmynd

Verkið felst í að gera nýja göngubrú yfir Vesturlandsveg suðvestan núverandi hringtorgs við Hafravatnsveg/Þverholt. Staðsetning og lega brúarinnar er í samræmi við deiliskipulag svæðanna beggja vegna Vesturlandsvegar. Um er að ræða 60m langa eftirspennta steinsteypta brú sambærilega að útliti þeirri sem nú er til staðar norðaustan hringtorgsins.

Fyllt er alveg upp að endum brúarinnar sem grundaðir eru á staurum, en grafið fyrir sökklum miðstöpuls og millistöpla sem eru sýnilegir. Beggja vegna brúarinnar verða byggðir stígar með 50 prómill halla að hámarki, auk tröpputenginga. Norðanmegin liggja stígar gegnum þéttvaxið trjásvæði, með trjám allt að 5m háum.

Lesa meira
 

8.8.2011 : Hafnarfjarðarvegur gatnamót í Engidal endurbætur

Gatnamót í Engidal -Yfirlitsmynd

Verkið felst í endurbótum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Fjarðarhrauns í Engidal Endurbæturnar felast í að

auka öryggi vegfarenda, bæði akandi og gangandi.Endurbætur ganga m.a. út á að setja upp fjögurra fasa umferðarljós, en með því er hægt að tryggja betur öryggi vinstribeygju umferðar. Fjölgun fasa umferðarljósa hefur í för með sér að græni tíminn á öðrum umferðarstraumum styttist og þar með afkastagetan. Til að vinna á móti þessari minnkun á afkastagetu þarf því að fjölga akreinum svo sama umferðarmagn og áður komist um gatnamótin þrátt fyrir styttri grænan tíma.

Lesa meira
 

7.7.2011 : Reykjanesbraut - Undirgöng við Straumsvík

Undirgöng við Sraumsvík

Vegna mikillar umferðar á Reykjanesbraut er þörf á að koma fyrir undirgöngum norðaustan við núverandi innkeyrslu að Álverinu í Straumsvík.
Byggð verða undirgöng undir Reykjanesbraut ásamt tilheyrandi vegtengingum og mun framkvæmdin auka umferðaröryggi til muna, þar sem ekki þarf lengur að þvera aðra umferð til og frá svæðinu.

Lesa meira
 

5.5.2011 : Reykjanesbraut - Undirgöng við Grænás

Undirgöng við Grænás - Yfirlitsmynd

Verkið felst í byggingu undirganga norðan hringtorgsins við Grænás, gerð framhjáhlaups í Reykjanesbraut vegna framkvæmdarinnar ásamt lagningu aðliggjandi göngu-, hjól- og reiðstíga.


Framkvæmdin innifelur einnig að annast flutning / endurnýjun kaldavatnslagnar austan Reykjanesbrautar næst undirgöngunum í samráði við HS Veitur.

Lesa meira
 

14.4.2011 : Framkvæmdir hafnar aftur í Mosfellsbæ

Seinni áfangi framkvæmda

Framkvæmdir við seinni hluta tvöföldunar Hringvegar ( Vesturlandsvegar ) um Mosfellsbæ milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar hófust í lok mars. Nú er unnið við kaflann frá Álafossvegi að Þingvallavegi.

 

Endanleg verklok eru áætluð í lok september 2011. Á framkvæmdatímanum verður reynt sem kostur er að takmarka truflanir á umferð. Verkið er í sameiginlegri forsjá Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar og verktaki er ÍAV hf.

 

Lesa meira
 

15.3.2010 : Suðurlandsvegur, tvöföldun - frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Kynning

Verkið felst í tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku ofan við Lækjarbotna og upp í Draugahlíðabrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskafla er um 6,5 km.

Lesa meira
 

22.10.2009 : Undirgöng við Grundarhverfi

Undirgöng við Grundarhverfi


Vegagerðin og Reykjavíkurborg hefja bráðlega byggingu undirganga fyrir gangandi vegfarendur, undir Vesturlandsveg, við Klébergsskóla.
Markmiðið með framkvæmdinni er að gera trygga gönguleið undir Vesturlandsveg og er þá sérstaklega verið að hugsa til skólabarna í Klébergsskóla.

Lesa meira
 

5.5.2009 : Ódýrar aðgerðir á vegakerfi höfuðborgarsvæðisins

Ódýrar aðgerðir í Reykjavík


Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um ódýrar aðgerðir til að draga úr umferðartöfum og/eða auka öryggi í umferðarkerfi Reykjavíkurborgar.

Lesa meira
 

25.3.2009 : Breikkun Suðurlandsvegar

Breikkun Suðurlandsvegar

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svinahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.


Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Lesa meira
 

18.4.2008 : Suðurlandsvegur - tvöföldun frá Hólmsá að Hveragerði

Suðurlandsvegur: 2 + 2 vegur

Vegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að vegamótum við Hveragerði. Byggður verður 2 + 2 vegur með mislægum vegamótum á allt að 7 stöðum. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg.


Drög að tillögu að matsáætlun vegna Suðurlandsvegar er nú kynnt almenningi, hagsmunaaðilum og lögbundnum umsagnaraðilum um tveggja vikna skeið, frá 20. apríl til 7. maí 2008, í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

Lesa meira

 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica