Kynning framkvæmda á Norðvestursvæði

27.6.2011 : Djúpvegur (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni

Djúpvegur um Seljalandsós

Vegagerðin kynnir með skýrslu þessari fyrirhugaðar endurbætur á 0,6 km kafla á Djúpvegi (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni í Súðavíkurhreppi.

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum á Ísafirði þann 5. apríl 2011 að veita 350 m.kr. til vegagerðar á Vestfjörðum, umfram þær fjárveitingar sem eru á samgönguáætlun. Vegagerðinni er falið faglegt val á verkefnum.

Lesa meira
 

11.10.2010 : Strandavegur,  Djúpvegur - Geirmundarstaðavegur í Strandabyggð

Strandavegur - Yfirlitskort

Vegagerðin kynnir hér með 2,8 km langa vegaframkvæmd á Strandavegi, af Djúpvegi í botni Steingrímsfjarðar að Geirmundarstaðavegi í mynni Selárdals til að fá úrskurð Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.
Jafnframt er fjallað um breytta legu Staðarvegar og Stakkanesvegar og tengingu Grænaness við Strandaveg.

Lesa meira
 

20.5.2010 : Hringvegur, vegur að námu í Húsaborg í Húnaþingi vestra, kynning framkvæmda vegna könnunar á matsskyldu

Vegur að námu í Húsaborg


Vegagerðin fyrirhugar að opna nýja efnisnámu fyrir klæðingarefni í Húsaborg í landi Auðunarstaða í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra í Vestur-Húnavatnssýslu. Í tengslum við námuvinnsluna þarf að leggja nýjan, um 1,1 km langan, námuveg.

Lesa meira

 

1.4.2009 : Vegagerð á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði

Vattarfjörður-Kjálkafjörður
Í Samgönguáætlun er gert ráð fyrir endurnýjun Vestfjarðavegar frá Vattarfirði í Kjálkafjörð. Ríkisstjórn Íslands lýsti því yfir árið 2007, er hún kynnti svonefndar mótvægisaðgerðir vegna minni þorskkvóta, að flýta ætti vegaframkvæmdum og þessi kafli yrði boðinn út um leið og undirbúningi væri lokið. Lesa meira
 

4.9.2008 : Djúpadalsvegur, Vestfjarðavegur á Hallsteinsnesi - Djúpidalur

Djúpadalsvegur
Fyrirhuguð er vegaframkvæmd á Djúpadalsvegi (6087), frá væntanlegum Vestfjarðavegi á Hallsteinsnesi að núverandi Vestfjarðavegi undir Mýrlendisfjalli ásamt tengingum. Lesa meira
 

22.5.2008 : Snæfellsnesvegur um Fróðárheiði

Vegagerðin áætlar að ljúka uppbyggingu Snæfellsnesvegar (54) yfir Fróðárheiði á næstu þremur árum. Vegur um Fróðárheiði liggur í 361 m hæð og er einn fjallveganna yfir Snæfellsfjallgarð, lítið eitt austan Ólafsvíkur.

Lesa meira

 

22.11.2007 : Óshlíðargöng - Skýrsla um aðstæður til jarðgangagerðar milli Hnífsdals og Bolungavíkur

Bolungarvík

Út er komin skýrsla sem lýsir aðstæðum til jarðgangagerðar milli Skarfaskers í Hnífsdal og Óss í Bolungavík.

Frá báðum gangamunnum er örstutt vegtenging .....

Lesa meira

 

7.6.2007 : Hringvegur um Hrútafjörð, ný tenging Djúpvegar

Hringvegur um Hrútafjörð, ný tenging Djúpvegar

Vegagerðin kynnir breytingu á fyrirhugaðri vegaframkvæmd á Hringvegi, vegnúmer 1, í Bæjarhreppi í Strandasýslu og Húnaþingi vestra í Vestur-Húnavatnssýslu, og Djúpvegi, vegnúmer 61, í Bæjarhreppi. Framkvæmdin nefnist:


Hringvegur um Hrútafjörð, Brú-Staðarskáli.


Ný vegtenging við Djúpveg liggur um tvö sveitarfélög og tvær sýslur á þessum kafla: annarsvegar Bæjarhrepp í Strandasýslu vestan sýslumarka, hinsvegar Húnaþing vestra í Vestur-Húnavatnssýslu, austan sýslumarka.


Lesa meira

 

28.2.2007 : Jarðgöng á leiðinni Bolungarvík ¿ Ísafjörður - Kynning á framkvæmdinni

Óshlíðargöng - kostir
Kynning á þremur gangakostum á Djúpvegi nr. 61 á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar sem nefndar hafa verið: Seljadalsleið, Skarfaskersleið og Hnífsdalsleið Lesa meira
 

19.7.2006 : Útnesvegur (574)

Útnesvegur á Snæfellsnesi

Vegagerðin kynnir hér fyrirhugaða vegaframkvæmd á Útnesvegi (574) sem liggur um norðvestanvert Snæfellsnes frá Háahrauni að Saxhóli (kort 1). Framkvæmdarsvæðið liggur í Þjóðgarðinum Snæfellsjökull og er á náttúruminjaskrá.


Fyrirhugað er að endurbyggja veginn á 16,9 km kafla með litlum breytingum á legu vegar en nokkuð hæðarlega. Vegurinn verður byggður í vegflokki C2 og í vegbreidd 6,5 m. Lögð verður klæðning og bundið slitlag á veginn. Með þessari framkvæmd er lokið við að endurbyggja Útnesveg með bundnu slitlagi frá Háahrauni til Saxhóls.

Lesa meira
 

24.3.2006 : Hringvegur 1-k1 Um Hrútafjörð

Vegagerðin er með skýrslu þessari að kynna vegaframkvæmd á Hringvegi, vegnúmer 1, í Bæjarhreppi í Strandasýslu og Húnaþingi vestra í Vestur-Húnavatnssýslu, og Djúpvegi, vegnúmer 61, í Bæjarhreppi.


Framkvæmdin nefnist: Hringvegur um Hrútafjörð, Brú-Staðarskáli.


Fyrirhugað er að endur- og nýbyggja veg, á kafla sem hefst skammt sunnan við Brú og endar norðan við Staðarskála. Vegaframkvæmdin er samtals um 6,8 km löng og .....

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica