Kynning framkvæmda á Suðursvæði

15.3.2010 : Suðurlandsvegur, tvöföldun - frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Kynning

Verkið felst í tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku ofan við Lækjarbotna og upp í Draugahlíðabrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskafla er um 6,5 km.

Lesa meira
 

25.3.2009 : Breikkun Suðurlandsvegar

Breikkun Suðurlandsvegar

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svinahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.


Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Lesa meira
 

18.4.2008 : Suðurlandsvegur - tvöföldun frá Hólmsá að Hveragerði

Suðurlandsvegur: 2 + 2 vegur

Vegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að vegamótum við Hveragerði. Byggður verður 2 + 2 vegur með mislægum vegamótum á allt að 7 stöðum. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg.


Drög að tillögu að matsáætlun vegna Suðurlandsvegar er nú kynnt almenningi, hagsmunaaðilum og lögbundnum umsagnaraðilum um tveggja vikna skeið, frá 20. apríl til 7. maí 2008, í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

Lesa meira

 

15.11.2006 : Hringvegur(1); Hafravatnsvegur - Þorlákshafnarvegur

Hólmsá - Nátthagavatn

Vegagerðin kynnir nú tillögu að breikkun Suðurlandsvegar um eina akrein í svokallaðan 2+1 veg, frá gatnamótum við Þorlákshafnarveg og Hveragerði að gatnamótum við Hafravatnsveg.


Vegurinn verður þá tvær akreinar í aðra áttina og ein akrein í gagnstæða átt.


Miðjuakrein er síðan víxlað sem næst á eins til tveggja og hálfs kílómetra millibili. Víravegrið verður sett á milli akstursstefna, sem dregur verulega úr líkum þess að bílar úr gagnstæðri átt rekist saman.

Lesa meira
 

13.1.2005 : Uxahryggjavegur, Þjóðgarðsmörk - Tröllháls

Vegagerðin er með skýrslu þessari að kynna vegaframkvæmd á Suðurlandi, Uxahryggjarvegi, vegnúmer 52, í Bláskógabyggð í Árnessýslu.


Á árunum 2003 til 2005 er fyrirhugað að endurbyggja Uxahryggjarveg frá Smjörbrekkum að Tröllhálsi. Framkvæmdin er samtals 5 km löng, hér er þó tekinn til kynningar um 6,5 km vegarkafli, eða alveg að þjóðgarðsmörkunum.


Framkvæmdin telst ekki matsskyld skv. lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica