Kynningargögn

Kynningargögnin sem eru gefin út í skýrsluformi gegna margvíslegu hlutverki. Þau eru notuð ef kanna þarf matsskyldu framkvæmdar skv. 6. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, þegar sækja þarf um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórna skv. 27. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og til að upplýsa landeigendur um eðli framkvæmda.

Í kjölfar breytinga á lögum um mat á umhverfisáhrifum árið 2000 var tekin ákvörðun hjá Vegagerðinni um að kynna einnig vegaframkvæmdir sem ekki falla undir lög nr.106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Í kynningargögnunum eru meðal annars upplýsingar um framkvæmdina og framkvæmdasvæðið og mat Vegagerðarinnar á umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar.

Birting þessara gagna á vef Vegagerðarinnar er liður í viðleitni Vegagerðarinnar til að fá almenning til liðs við sig og bæta þannig eigið mat á umhverfisáhrifum þessara verka."


Fyrirvari varðandi veftilvísanir

Á vef Vegagerðarinnar eru birtir tenglar og tilvísanir, ýmist í reglugerðarsafn stjórnartíðinda og/eða lagasafn Alþingis.

Tenglar þessir eru ætlaðir til hægðarauka fyrir notendur vefs Vegagerðarinnar.

Engin ábyrgð er tekin á upplýsingum sem þar birtast og skal áréttað að ef misræmi er, gildir texti sem birtur er í Stjórnartíðindum.

Lög er að finna á slóðinni: www.althingi.is

Reglugerðir er að finna hér:
Reglugerðarsafn

Alþjóðasamninga má finna hér: www.umhverfisraduneyti.is

Helstu lagagögn og réttarheimildir: www.rettarheimild.is

Birtingar Stjórnartíðinda:
www.stjornartidindi.is



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica