Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.8.2017
Framkvæmdir á Reykjanesbraut
Í dag miðvikudag 9. ágúst er stefnt að því malbika á Reykjanesbraut frá brú við Vatnsleysustrandarvegi á 1100m kafla til suðurs á hægri akrein og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmd stendur frá kl. 08:00 til 18:00
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42),
en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut
(Klukkutorg). Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og
síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið
framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun
1. september 2017.
Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.