Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.7.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi 9. júlí kl 07.30
Litur: GulurEnn
verður hvasst á landinu, nú með S- og SV-átt, sérstaklega um norðvestanvert
landið og á hálendinu. Frá Snæfellsnesi vestur um og norður í Eyjafjörð verður
stormur, 18-23 m/s frá hádegi og fram á nótt. Snarpir strengir verða einkum á
fjallvegunum og eins staðbundið á láglendi. Síðdegis og í kvöld er
reiknað með sandfoki norðan Vatnajökuls og á Möðrudalsöræfum.
Framkvæmdir
Mánudaginn 9. júlí er stefnt að því að malbika
akreinar á Gullinbrú. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur
og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 17:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt þriðjudagsins 10. júlí.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.