Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.5.2018

9.5.2018 8:55

Færð og aðstæður

Vetraraðstæður eru á fjallvegum á Vestfjörðum annar eru allar aðalleiðir greiðfærar á landinu.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.