Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.5.2018
Lokun
Ölfusárbrú við Selfoss verður lokuð í stutta stund vegna umferðaróhapps en hjáleið er um Óseyrarbrú.
Færð og aðstæður
Vetraraðstæður eru á fjallvegum á Vestfjörðum annar eru allar aðalleiðir greiðfærar á landinu.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.