Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suðvesturlandi en á Vesturlandi eru vegir víðast greiðfærir eða í hálkublettum. Éljagangur er á Snæfellsnesi.
Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Vestfjörðum. Þæfingur er á Kleifaheiði, Klettshálsi og á Hálfdán.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Vegir með suðausturströndinni eru greiðfærir.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.