Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.3.2018

9.3.2018 10:24

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en á Vesturlandi eru vegir víðast greiðfærir eða í hálkublettum.

Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Vestfjörðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Þungfært er í Dalsmynni. Hálka er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.  

Hálka eða snjóþekja og skafrenningur er á flestum vegum á Austurlandi. Vegir með suðausturströndinni eru að mestu leiti greiðfærir en hálkublettir eru í Eldhrauni.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.