Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.3.2018

9.3.2018 7:31

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en á Vesturlandi eru vegir víðast greiðfærir eða í hálkublettum.

Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Vestfjörðum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Þungfært er í Héðinsfirði og í Dalsmynni en þæfingur á Hólasandi. Snjóþekja er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en þæfingur á Vopnafjarðarleið og Fagradal. 

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi, vegir með suðausturströndinni eru að mestu leiti greiðfærir en hálkublettir eru í Eldhrauni.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.