Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.2.2019

9.2.2019 13:06

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir á nokkrum vegum og eitthvað um skafrenning.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða skafrenningur. Þæfingur er á Skógarströnd og Heydal en lokað er yfir Fróðárheiði. Þungfært er yfir Laxárdalsheiði.

Vestfirðir: Hálka, snjóþekja eða þæfingur á flestum vegum og eitthvað er um éljagang og skafrenning. Þungfært er víða á Ströndum og ófært er yfir Klettsháls, en þar er unnið að mokstri.

Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Þæfingur er á Þverárfjalli en ófært er um Víkurskarð. Þæfingur er um Almenninga og er unnið þar að mokstri.

Norðausturland: Snjóþekja, hálka eða þæfingur og víðast hvar skafrenningur. Ófært er á Hólasandi.

Austurland: Hálka, snjóþekja og þæfingur nokkuð víða og skafrenningur eða éljagangur. Ófært er Vatnsskarði eystra en þar er unnið að mokstri.

Suðausturland: Hálkublettir og skafrenningur og víða all hvasst jafnvel sandfok.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.


Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/