Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.2.2019

9.2.2019 10:32

Lokanir:

Flateyrarvegur er lokaður vegna snjóflóðs sem féll á veginn.
Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er enn lokaður en unnið er að mokstri þar.

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir á nokkrum vegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Mosfellsheiði en hvasst er á Kjalarnesi. 

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða skafrenningur. Þæfingur er víða á Snæfellsnesi en lokað er yfir Fróðárheiði og ófært milli Búða og Hellna. Mjög hvasst er á sunnanverðu Snæfellsnesi og má búast við lélegu skyggni.

Vestfirðir: Hálka eða þæfingur á flestum vegum og éljagangur eða skafrenningur víða. Þungfært er yfir Steingrímsfjarðarheiði, á Þröskuldum, yfir Vatnsfjarðarháls og á Ströndum.  Ófært er yfir Klettsháls, einnig milli Þröskulda og Reykhólavegar og yfir Bjarnarfjarðarháls. Flateyrarvegur er lokaður vegna snjóflóðs.

Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Þæfingur er á Þverárfjalli en ófært er um Víkurskarð og Almenninga.

Norðausturland: Snjóþekja, hálka eða þæfingur víðast hvar og skafrenningur. Ófært er á Hólasandi en lokað er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi.

Austurland: Snjóþekja, þæfingur eða jafnvel þungfært nokkuð víða. Ófært er mjög víða s.s. á Jökuldal, í Skriðdal, Hróarstungu og á Vatnsskarði eystra. Búið er að opna veginn yfir Fjarðarheiði.

Suðausturland: Hálkublettir og skafrenningur og víða all hvasst.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.


Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/