Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.12.2017

9.12.2017 20:42

Færð og aðstæður


Greiðfært er á Reykjanesbraut og á Höfuðborgarsvæðinu en annars er víðast hvar hálka eða hálkublettir á landinu.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.