Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 9.11.2018

9.11.2018 21:19

Ábendingar frá veðurfræðingi, 9. nóv. kl. 14.00

Litur: Gulur
Hvasst verður, en áfram milt sunnan- og suðaustanlands til morguns. Hvað hvassast í Öræfum við Sandfell í fyrramálið frá kl. 7 til 11.

Færð og aðstæður

Landið: Vegir eru að mestu greiðfærir á landinu en hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Norðausturlandi.


Þungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63)

Þungatakmarkanir eru á Bíldudalsvegi ( 63) frá Hvassanesflugvelli ađ Helluskarđi (gatnamót Vestfjarðavegar (60) og Bildudalsvegar). 7 tonna þungi sem tekur gildi nú þegar.

Umferðartafir við Svínafellsá í Öræfum

Vegna vinnu við endurbætur á brúnni yfir Svínafellsá í Öræfum verða smávægilegar á mánudaginn 12. nóvember. . Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag má síðan búast við talsverðum umferðartöfum allt að 40 mínútum í senn og verður umferð stýrt með umferðarljósum i gegnum vinnusvæðið.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði

Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.

Hálendið

Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.