Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.7.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi, sunnudaginn 8. júlí kl. 09:30
8. júlí. kl. 09:30
Litur: Gulur Suðvestan- og vestanlands hvessir þegar líður á daginn með skilum lægðar sem fer fyrir vestan land. SSA-átt og reikna má með hviðum allt að 30-35 m/s sérstaklega við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Stendur frá um kl. 15-22. Kjalarnes sleppur heldur betur í þessari vindátt.Hvassviðri
Mikið hvassviðri er á norðanverðu Snæfellsnesi.
Framkvæmdir
Í kvöld sunnudaginn 8. og aðfaranótt mánudagsins 9. júlí er stefnt að því að malbika akrein í Ártúnsbrekku, frá rampi við Bíldshöfða og niður að beygjuramp við Sæbraut. Rampinum verður lokað, hjáleiðir og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:00 til kl. 07:00.
Mánudaginn 9. júlí er stefnt að því að malbika
akreinar á Gullinbrú. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur
og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi merkingar verða settar
upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 17:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát
við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt þriðjudagsins 10. júlí.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.