Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.7.2018

8.7.2018 9:48

Ábendingar frá veðurfræðingi, sunnudaginn 8. júlí kl. 09:30

8. júlí. kl. 09:30

Litur: Gulur Suðvestan- og vestanlands hvessir þegar líður á daginn með skilum lægðar sem fer fyrir vestan land. SSA-átt og  reikna má með hviðum allt að 30-35 m/s sérstaklega við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi.  Stendur frá um kl. 15-22.  Kjalarnes sleppur heldur betur í þessari vindátt.

Framkvæmdir

Í kvöld sunnudaginn 8. og aðfaranótt mánudagsins 9. júlí er stefnt að því að malbika akrein í Ártúnsbrekku, frá rampi við Bíldshöfða og niður að beygjuramp við Sæbraut. Rampinum verður lokað, hjáleiðir og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:00 til kl. 07:00.

Mánudaginn 9. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Gullinbrú. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi merkingar verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 17:00.


Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt þriðjudagsins 10. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.