Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.5.2018
Færð og aðstæður
Hálka er á Hálfdán, hálkublettir á Hrafnseyrarheiði og krapi á Dynjandisheiði en annars eru vegir greiðfærir á landinu
Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum
Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.
Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.