Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.3.2018

8.3.2018 8:18

Umferðatafir

Umferðatafir verða við brúna yfir Jökulsá á Sólheimasandi frá kl. 11 í dag fimmtudaginn 8. mars og eitthvað fram eftir degi. Verið er að skipta um handrið á brúnni. Umferð verður stöðvuð í 10-15 mín. öðru hverju. Bílar frá Vegagerðinni verða sitt hvoru megin brúar og stjórna umferðinni.


Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi, og á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir. Þó er hálka á Svínadal.

Hálka eða hálkublettir er allvíða á Vestfjörðum einkum á norðanverðum fjörðunum og í Djúpinu. Snjóþekja og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði en þæfingur og skafrenningur á Þröskuldum.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast  hálka eða snjóþekja.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi en þæfingur og snjókoma er á Fjarðarheiði og á Möðrudalsöræfum,  vegir með suðausturströndinni eru hins vegar mikið til auðir frá Höfn suður um.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.