Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.3.2018
Lokað
Lyngdalsheiðarvegi hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna alvarlegs umferðarslyss.Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi en á Vesturlandi eru vegir víðast greiðfærir eða í hálkublettum.
Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Vestfjörðum. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði, á Þröskuldum og á Klettshálsi.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan hefur éljað og er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Þungfært er í Dalsmynni en þæfingur á Hólasandi. Snjóþekja er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en þæfingur á Vopnafjarðarleið.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi, vegir með suðausturströndinni eru að mestu leiti greiðfærir en hálkublettir eru í Eldhrauni.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.