Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.2.2019

8.2.2019 21:59

Lokanir á Austurlandi:

Vegurinn um Fagradal er lokaður og verður ekki opnaður í kvöld vegna veðurs og snjóflóðahættu.
Vegurinn um Fjarðarheiði er lokaður og verður ekki opnaður í kvöld vegna veðurs.
Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er lokaður og verður ekki opnaður í kvöld.
Vegurinn um Hvalnesskriður er lokaður vegna snjóflóðs.
Athugað verður með opnanir í fyrramálið.

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir á nokkrum vegum. Hálkublettir og skafrenningur er á Mosfellsheiði en óveður er á Kjalarnesi. 

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Þæfingur er á Vatnaleið, Fróðárheiði sem og milli Búða og Hellna. Skyggni er lítið við Hafursfell sem og á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða  snjóþekja er á vegum og éljagangur eða skafrenningur mjög víða. Þæfingsfærð er á Klettshálsi, Steingrímsfjarðarheiði, á Þröskuldum og á Kaldrananesi en þungfært er á Bjarnarfjarðarhálsi. 

Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli, í Ólafsfjarðarmúla, milli Dalvíkur og Árskógsstrandar sem og á Grenivíkurvegi. Ófært er um Víkurskarð og Almenninga, milli Siglufjarðar og Fljóta. 

Norðausturland: Snjóþekja víðast hvar og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Fljótsheiði sem og í Bakkafirði en þungfært er orðið á Tjörnesi, innansveitar í Vopnafirði sem og á Brekknaheiði. Ófært er um Hófaskarð og Hálsa en lokað er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi sem og á Hólasandi.

Austurland: Snjóþekja, þæfingur eða jafnvel þungfært er nokkuð víða. Ófært er í Skriðdal, Hróarstungu og á Vatnsskarði eystra en lokað er á Fjarðarheiði, á Fagradal og í Hvalnesskriðum.

Suðausturland: Hálkublettir eða hálka víðast hvar og sumsstaðar skafrenningur.

Suðurland: Hringvegurinn er nánast auður en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum. Skafrenningur er Lyngdalsheiði. 

Frá veðurfræðingi 8. feb. kl. 11:10

Annar bakki úr norðri stefnir á landið N- og A-vert  fyrir kvöldið. 14-20 m/s, skafrenningur og hríðarveður með köflum fram á nótt frá Holtavörðuheiði, norður og austur um á S-verða Austfirði. Lægir heldur í Öræfum eftir hádegi, en aftur hviðuveður í fyrramálið. 

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/