Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.12.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Litur
gulur.
Hvöss norðvestanátt með éljalofti og skafrenningi frá Höfn til norðurs að Vopnafirði. Hvassast er í Hamarsfirði, en blint getur verið á köflum í skafrenningi á fjallvegum á Austfjörðum og Austurlandi.
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víða hvar greiðfærir en þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti.Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi er hálka og snjóþekja. Lokað er á Dettifossvegi.
Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og hálkublettir og víða skafrenningur. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Ófært er i Hamarsfirði vegna hvassviðris.
Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.