Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.11.2018
Færð og aðstæður
Landið allt: Greiðfært er að mestu um allt land. Þó eru hálkublettir eru á nokkrum leiðum um norðvestan- norðaustan- og austanvert landið. Flughálka er á Dynjandisheiði og í Bárðardal.Vestfirðir: Hálkublettir eru á Hálfdán og norður í Árneshrepp en flughálka er á Dynjandisheiði.
Norðurland: Hálkublettir eru á nokkrum útvegum.
Norðausturland: Hálkublettir eru á nokkrum leiðum en flughált er í Bárðardal.
Austurland: Hálkublettir eru á Öxi, Breiðdalsheiði og á Fjarðarheiði.
Umferðartafir á Öxnadalsheiði
Vegna vinnu við þjóðveg 1 um Öxnadalsheiði verða stuttar umferðartafir ofantil í Bakkaselsbrekku frá klukkan 11:00 í 3 – 4 tíma.
Umferðartafir við Vaðlaheiðargöng
Næstu tvo daga standa yfir malbikunarframkvæmdir á Hringvegi 1 beggja vegna Vaðlaheiðarganga. Á meðan á framkvæmdunum stendur er hámarkshraði færður niður í 30 km/klst öryggisins vegna. Umferð um Hringveginn verður stjórnað með umferðarljósunum og einungis ein akbraut í notkun.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.
Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði
Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.
Hálendið
Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.