Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.11.2018

8.11.2018 7:46

Færð og aðstæður

Vesturland: Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Laxárdalsheiði. Þoka er á Holtavörðuheiði.

Vestfirðir: Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum. Hálka er á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði er ófær og krapi er á leiðinni norður í Árneshrepp. 

Norðurland: Það eru hálkublettir á nokkrum leiðum og þoka í Skagafirði. 

Norðausturland: Hálkublettir eru á nokkrum leiðum, aðalleiðir að mestu greiðfærar.

Austurland: Þar eru nokkuð víða hálkublettir en hálka á Breiðdalsheiði og á Öxi. Þoka er á Fjarðarheiði. 

Umferðartafir á Öxnadalsheiði 

Vegna vinnu við þjóðveg 1 um Öxnadalsheiði verða stuttar umferðartafir ofantil í Bakkaselsbrekku frá klukkan 11:00 í 3 – 4 tíma.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði

Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.

Hálendið

Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.