Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.9.2018

7.9.2018 11:07

Tafir

Vegna fjárrekstrar verða umferðartafir á Hringvegi við Fornahvamm í Norðurárdal á milli kl. 17:00 – 20:00 í dag.

Einnig má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.

Föstudaginn 8 .sept

Biskupstungnabraut 35 , milli Gullfoss og Geysis  frá kl: 11:30 til 13:30.

Skeiða- og Hrunamannavegur F30  við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30.

Einholtsvegur F358 frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á  kvöld.

Laugardaginn 9. Sept

Biskupstungnabraut 35 frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi.

Einholtsvegur F358 frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.


Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.