Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.6.2017

7.6.2017 15:54

Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag, miðvikudaginn 7. júní er verið að malbika Fjarðarhraun í Hafnarfirði, frá Stakkahrauni og fram yfir gatnamót við Hjallahraun ásamt frárein inn á Hjallahraun. Vegkaflanum verður lokað og má búast við lítilsháttar umferðartöfum en hjáleið er merkt.

Í dag á einnig reiknað að fræsa báðar akreinar á Sæbraut til austurs, frá Klettagörðum fram yfir gatnamót við Sundagarða. Annari akreininni verður lokað í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum fram um kl. 16:00.

Á morgun, fimmtudaginn 8. júní stendur til að fræsa og malbika á Reykjanesbraut til vesturs. Um er að ræða vinstri akrein austan megin gatnamóta við Voga á Vatnsleysuströnd. Akreininni verður lokað og umferðarhraði lækkaður og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á milli kl. 8:00 til kl. 18:00. - Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst.

Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.

Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 10 júní).

Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 30. júní vegna framkvæmda.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.