Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.6.2017
Færð og aðstæður
Vetrarfærð er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, krapi á vegi og hálka. Það er hálka á Dettifossvegi en krapi á Hólssandi og eins á Hófaskarði. Hellisheiði eystri er þungfær en krapi er bæði á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra.Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag, miðvikudaginn 7.júní er stefnt að því að malbika Fjarðarhraun í Hafnarfirði, frá Stakkahrauni og fram yfir gatnamót við Hjallahraun ásamt frárein inn á Hjallahraun. Vegkaflanum verður lokað og má búast við lítilsháttar umferðartöfum en hjáleið verður merkt. Áætlað er að vinnan standi yfir milli kl. 9:00 og 14:00.
Einnig er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, frá gatnamótum í Engidal og að Stakkahrauni. Annari akreininni verður lokað í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að vinnan standi yfir milli kl. 12:00 til kl. 19:00.
Í dag á einnig reiknað að fræsa báðar akreinar á Sæbraut til austurs, frá Klettagörðum fram yfir gatnamót við Sundagarða. Annari akreininni verður lokað í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á milli kl. 9:00 og 16:00.
Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst.
Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 10 júní).
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 30. júní vegna framkvæmda.Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.