Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.5.2018
Færð og aðstæður
Á Suður- og suðvesturlandi eru flestar leiðir greiðfærar.
Á Vesturlandi er víðast hvar greiðfært á láglendi en vetraraðstæður á nokkrum fjallvegum.
Vetraraðstæður eru einnig á fjallvegum á Vestfjörðum en greiðfært er á flestum vegum á láglendi. Snjóþekja er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar en unnið er að mokstri. Hálkublettir eru í Árneshrepp.
Það er greiðfært á Norður- og Austurlandi.
Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum
Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.
Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.