Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.3.2018

7.3.2018 7:06

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðvesturlandi, og á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir. Þó er hálka á Svínadal.

Vetrarfærð er á Vestfjörðum, víðast hálka eða snjóþekja og sums staðar skafrenningur eða él. Þæfingsfærð er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er víðast snjóþekja eða hálka. Verið er að hreinsa vegi eftir nóttina.

Eins er snjóþekja eða hálka á flestum vegum á Austurlandi, raunar þæfingur á Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsöræfum eins og er. Vegir með suðausturströndinni eru hins vegar mikið til auðir frá Hvalsnesi suður um.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.