Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.12.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi kl: 14:00
Litur
gulur.
Hvöss norðvestanátt með éljalofti og skafrenningi frá Höfn til norðurs að Vopnafirði. Hvassast er í Hamarsfirði, en blint getur verið á köflum í skafrenningi á fjallvegum á Austfjörðum og Austurlandi.
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víða hvar greiðfærir en þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti.Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eru á vegum á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi er hálka og víða er éljagangur og skafrenningur. Ófært er á Dettifossvegi.
Á Austurlandi er snjóþekja og stórhríð á Möðrudalsöræfum, á Fagradal og Fjarðarheiði er þæfingur og stórhríð, þungfært er frá Reyðarfirði að göngum Eskifjarðar megin, þungfært og stórhríð er í Fannadal annars er víða hálka eða snjóþekja og mikill skafrenningur. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði.
Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni og mjög hvasst og sumstaðar skafrenningur.
Vinna á Miklubraut í dag 7. des.
Unnið er í dag þriðjudaginn 7. desember frá kl. 09:15 og fram eftir degi við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Réttarholtsvegar og Grensásvegar.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Tafir
Það verða tafir á vegi 31 Skálholtsvegi við Hvítárbrú við Iðu 7. desember
frá kl.16:00 til 19:00
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.