Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.12.2017

7.12.2017 7:49

Færð og aðstæður

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Suður- og Vesturlandi og skafrenningur og éljagangur á fjallvegum.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum, sumstaðar skafrenningur. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.  Eins er ófært norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi, í Öxnadal og til Dalvíkur, Dettifossvegur er ófær.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Þungfært og stórhríð er á Fjarðarheiði. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Mjög hvasst er í Hamarsfirði og bara almennt á Austfjörðum. Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni og mjög hvasst og skafrenningur..

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.