Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.11.2018

7.11.2018 13:16

Færð og aðstæður

Vesturland: Það eru hálkublettir á Laxárdalsheiði.

Vestfirðir: Hálkublettir eru á fjallvegum en ófært á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.

Norðurland: Þar eru hálkublettir á nokkrum leiðum, einkum á fjallvegum. Þoka er á Öxnadalsheiði.

Norðausturland: Hálka eða hálkublettir eru á vegum og þoka á flestum fjallvegum.

Austurland: Þar eru víða hálkublettir en hálka á Fjarðarheiði og Öxi og flughált á Vatnsskarði eystra. Þoka er á Jökuldal, Heiðarenda, Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði

Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.

Hálendið

Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.