Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.11.2018
Færð og aðstæður
Vesturland: Það eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.
Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir eru á fjallvegum og víða nokkuð hvasst. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru ófærar.
Norðurland: Þar eru hálkublettir á nokkrum leiðum, einkum á fjallvegum.
Norðausturland: Hálka eða hálkublettir eru á vegum og þoka á flestum fjallvegum.
Austurland: Þar eru víða hálkublettir en krapi er í Hjaltastaðaþinghá, hálka á Fjarðarheiði og flughált á Öxi.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.
Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði
Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.
Hálendið
Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.