Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.9.2018
Framkvæmdir á Hellisheiði
Fimmtudaginn 6. september er verið að fræsa hvinrendur í báða kanta í austurátt í Hveradalabrekku á Hellisheiði. Hraðinn verður tekinn niður í 50 á þriggja km kafla og búast má við lítilsháttar töfum.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.