Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.7.2018

6.7.2018 8:04

Framkvæmdir

Í dag föstudaginn 6. júlí er stefnt að því að fræsa og malbika innstu akrein á Reykjanesbraut, frá gatnamótum við Bústaðaveg að mislægum gatnamótum við Stekkjarbakka. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 07:00 til kl. 15:00.

Í dag föstudaginn  6. júlí er stefnt að því malbika á Hafnarfjarðarvegur- Kópavogsgjá –Kópavogslækur/ Vífilstaðavegur, enn unnið er á einni akrein í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmd stendur

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 08:30 og 19:00.


Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt þriðjudagsins 10. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.