Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.3.2018

6.3.2018 21:57

Færð og aðstæður

Það er lítils háttar hálka á fáeinum vegum á Suður- og Suðvesturlandi, en vegir þar eru þó að mestu auðir.

Á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir. Þó er hálka á Svínadal.

Vetrarfærð er á Vestfjörðum, víðast hálka eða snjóþekja og sums staðar skafrenningur.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er víða nokkur hálka og sums staðar snjóþekja.

Eins eru hálkublettir, hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.