Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.3.2018

6.3.2018 9:01

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir á fáeinum vegum á Suður og Suðvesturlandi, þ.á.m. Hellisheiði og Mosfellsheiði, en vegir þar eru þó að mestu auðir.

Á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir.

Vetrarfærð er á Vestfjörðum, víðast hálka eða snjóþekja. Klettsháls er ófær eins og er.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er hálka og sums staðar snjóþekja.

Eins er nokkur hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi en eitthvað þyngri færð á fáeinum sveitavegum.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.