Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.3.2018
Færð og aðstæður
Það eru hálkublettir á fáeinum vegum á Suður og Suðvesturlandi, þ.á.m. Hellisheiði og Mosfellsheiði, en vegir þar eru þó að mestu auðir.
Á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir.
Vetrarfærð er á Vestfjörðum en mokstur langt kominn. Enn er þó ófært á Klettshálsi.
Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er hálka eða snjóþekja.
Eins er nokkur hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi en eitthvað þyngri færð á fáeinum sveitavegum.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.