Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.3.2018
Færð og aðstæður
Það eru hálkublettir á fáeinum vegum á Suður og Suðvesturlandi, þ.á.m. Hellisheiði og Mosfellsheiði, en vegir þar eru þó að mestu auðir.
Á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir.
Vetrarfærð er á Vestfjörðum en mokstur langt kominn. Enn er þó ófært á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er hálka eða snjóþekja.
Eins er nokkur hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi en eitthvað þyngri færð á fáeinum sveitavegum.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 sums staðar verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn. Á fáeinum vegum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.