Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.3.2018

6.3.2018 7:47

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir á fáeinum vegum á Suður og Suðvesturlandi, þ.á.m. Hellisheiði og Mosfellsheiði, en vegir þar eru þó að mestu auðir.

Á Vesturlandi eru víðast aðeins hálkublettir eða vegir alveg auðir.

Verið er að hreinsa vegi á Vestfjörðum en þar er víðast hvar snjóþekja eða nokkur hálka. Þungfært er á kafla í Djúpinu en ófært á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi eru vegir að miklu leyti auðir austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er hálka eða snjóþekja.

Eins er nokkur hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Austur- og Suðausturlandi en eitthvað þyngri færð á nokkrum sveitavegum.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 sums staðar verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn. Á fáeinum vegum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.